Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, minnist þess í færslu á Facebook er hann tók viðtal við systurnar tvær sem taldnar eru að hafa verið féflettar af óprúttni konu á sextugsaldri. Í Fréttablaðinu í dag var greint frá því að kona er ákærð fyrir að stela nærri áttatíu milljónum króna frá tveimur heilabiluðum systrum á tíræðisaldri.
Í færslunni segir Sigurður aðra systurina vera látna en hin lifir enn. „Sögu þeirra skrifaði ég, birtist í DV í janúarlok 2003. Erla og Ástríður bjuggu á tólftu hæð í Austurbrún 12, áttu fimm af sex íbúðum á hæðinni. Sveitastúlkur úr Skagafirði sem urðu heimskonur í hárri blokk. Dapurleg örlög á merki sögu,“ segir í færslu Sigurðar.
Konan átti í trúnaðarsambandi við systurnar og er sökuð um að notfærða sér stöðu sína til að lifa lúxuslífi. Hún á að hafa notað debetkort annarrar systurinnar daglega í heimilisrekstur og keypt sér gjaldeyri og merkjavörur og aðgang að golfvelli í Mosfellsbæ. Hún hafi látið systurnar útbúa erfðaskrá svo hún myndi erfa allar eignir þeirra.
Hægt er að lesa frétt Fréttablaðsins hér