Danskar sjón­varps­stjörnur gáttaðar á ís­lensku hestatagli: „Það er því­lík ó­lykt af þessu! Hvað í ó­sköpunum eigum við að gera við þetta?“

Halla Ár­manns­dóttir, prjóna­hönnuður, fékk danskar sjón­varps­stjörnur frá DR2 í heim­sókn á dögunum.

Halla sýndi þeim meðal annars hvernig hún nýtir hestatögl í hönnun sinni, stjörnunum fyrst til mikillar skelfingar.

„Þær eru báðar frá­bærar,“ segir Halla Ár­manns­dóttir í sam­tali viðFrétta­blaðið en hún fékk dönsku sjón­varps­stjörnurnar Lærke Bag­ger og Christine Feld­t­haus, í heim­sókn til sín þar sem þær voru staddar á Ís­landi síðasta sumar.

Til­efnið er sjón­varps­þáttur þeirra Christine og Lærke sem ber nafnið Feld­t­haus & Bag­ger tapa grímunni. Hann var sýndur í danska ríkis­út­varpinu síðasta laugar­dags­kvöld.

Í þættinum ein­blíndu þær stöllur á ís­lenska prjóna­hönnun og það er engin til­viljun að þær hafi heim­sótt Höllu sem er út­skrifaður prjóna­hönnuður frá London College of Fas­hion og selur hönnun sína undir nafninu Halla Ar­manns.

„Ég hef fylgst lengi með Lærke Bag­ger og það var ó­trú­lega skemmti­legt að fá hana í heim­sókn,“ segir Halla. Það vakti at­hygli að í þættinum var Lærke yfir sig hrifin af hönnun Höllu og gekk meðal annars beint í síða slá úr hönnun Höllu.

Drauma­flíkin

„Ég bjóst alls ekki við því að hún myndi fara í hana,“ segir Halla hlæjandi en Lærke hrein­lega gekk að flíkinni og skellti sér í hana í þættinum. „Hún sagðist bara verða að fara í hana,“ segir Halla sem segir það eðli málsins sam­kvæmt vera mikinn heiður.

„Þetta gerir eitt­hvað mikið fyrir sjálfs­traust mitt,“ segir danski prjóna­hönnuðurinn á meðan Christine tekur undir: „Þetta er sjálf­bær tíska og þetta er sjálf­bær kyn­þokki!“

„Það tók mig ó­trú­legan tíma að hanna þessa flík, sem er alls ekkert alltaf mögu­leiki. En ég leyfði mér loksins að gera drauma­flíkina mína og hún átti að verða hluti af sýningu í New York sem svo var hætt við, þannig að ég er mjög þakk­lát fyrir að hún hafi nú samt fengið ein­hverja at­hygli,“ út­skýrir Halla létt í bragði.

„Þetta er skemmti­legt hand­verk og sýnir hvað er hægt að gera mikið. Ég held að oft sé fólk kannski fast í því að hugsa bara um prjón sem ís­lensku lopa­peysuna eða húfu og vettlinga, á meðan mögu­leikarnir með prjón eru miklu fleiri og prjónninn er nýttur úti í heimi á svo allt öðru­vísi hátt en hér heima,“ segir Halla.

Tor­tryggnar í garð taglsins

Halla bætir því við að það sé stór­kost­legt hvernig þættir þeirra Lærke og Christine vekja at­hygli á flórunni í prjóna­heiminum hér heima og víðar. Prjóna­hönnun er ekki það eina sem kemur við sögu í þættinum en Halla sýndi Dönunum hvernig hún nýtir tögl af hestum í hönnun sína.

„Þær voru ekkert sér­lega spenntar fyrst og það er oftast upp­lifun flestra fyrst þegar ég sýni þeim þetta,“ segir Halla hlæjandi en hún fékk þær Lærke og Christine til að að­stoða sig við að þvo hestata­gl í þættinum.

„Það er því­lík ó­lykt af þessu! Hvað í ó­sköpunum eigum við að gera við þetta?“ spyr Christine meðal annars í þættinum. Þær urðu þó öllu hrifnari af þessu þegar Halla sýndi þeim af­raksturinn en hún hannar meðal annars eyrna­lokka, veski og arm­bönd úr töglunum.

„Því miður er taglið eitt­hvað sem endar eigin­lega alltaf í ruslinu. Það er líka rosa­lega flókið að vinna efni úr þessu því hárin eru mis­löng. En ef við ætlum að vera að slátra hrossum yfir höfuð þá þurfum við að gera okkur grein fyrir því að við verðum að nýta allt það sem hrossið hefur að gefa.“

Halla Ár­manns­dóttir, prjóna­hönnuður.