Flestir Íslendingar hafa heyrt málfræðingsins Rasmusar Kristians Rasks getið, en nýverið gaf Hið íslenska bókmenntafélag út ævisögu Rasks. Rask var heimsfrægur vísindamaður og er talinn einn af feðrum samanburðarmálfræðinnar. Auður Hauksdóttir, prófessor í dönsku og forstöðumaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, ræðir um Rask við Björn Jón Bragason í þættinum Sögu & samfélagi á Hringbraut í kvöld.
Auður hefur meðal annars rannsakað þær hræringar sem áttu sér stað í dönsku menningarlífi á dögum Rasks þegar dönsk þjóðernisstefna tekur á sig mynd. Skáld og fræðimenn litu þá mjög til íslenskra miðaldabókmennta í leit að upprunanum, meðal annars í málfræðilegu tilliti. Keppst var við að hreinsa þýsk orð úr dönsku, málið fyrnt og norræns uppruna leitað.
Með rannsóknum sínum hefur Auður leitt í ljós gríðarlega þýðingu íslenskrar menningar við myndun danskrar þjóðarvitundar.
Saga & samfélag á Hringbraut í kl. 21.30