„Við keyptum 230 fermetra einbýlishús hérna á verði blokkaríbúðar og þessar niðurstöður koma mér ekki mikið á óvart,“ segir Daníel Geir Moritz, grunnskólakennari og formaður knattspyrnudeildar ÍBV, í Fréttablaðinu í dag.
Í blaðinu er fjallað um niðurstöður nýrrar könnunar þess efnis að íbúar Vestmannaeyja séu þeir hamingjusömustu á landinu. Þar þykir einnig best að búa. Þar á eftir komu Akureyri og Eyjafjörður.
Aftur á móti eru íbúar Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins óhamingjusamastir. Könnunin fór fram í september og október í fyrra og svöruðu um 10 þúsund manns henni.
Í samtali við Fréttablaðið segir Daníel Geir að niðurstöðurnar komi honum ekkert á óvart. Það sé frábært að búa í Eyjum en þangað flutti hann fyrir þremur árum ásamt unnustu sinni, Sigurleif Kristmannsdóttur, sem er úr Eyjum.
„Ég myndi segja að númer eitt tvö og þrjú er Eyjafólk er stolt af sinni sögu og sínu samfélagi. Það er enginn sem heldur meira með bænum sínum eða íþróttaliðinu sínu en Vestmanneyingar. Svo er líka gott aðgengi að fólki sem tekur ákvarðanir. Þetta er heppileg stærð af sveitarfélagi, hvorki of lítið né of stórt,“ segir hann og bætir við að þjónustustigið sé hátt, mikil dagskrá fyrir börn og barnafjölskyldur og þá skemmi náttúrufegurðin ekki fyrir.
„Það sem lætur mér líða vel, sem íbúa í Vestmannaeyjum, er hvað Eyjamenn eru duglegir að stytta sér stundir með mjög mismunandi hætti. Hér er rosaleg dagskrá fyrir börn og barnafjölskyldur og það er mjög hátt þjónustustig. Veitingastaðir eru góðir og hér er besta brugghús landsins, sem hentar mér einstaklega vel.“