Dagur vill fé­lags­í­búðir á fleiri staði í borginni: „Svo við endum ekki uppi með ó­geðs­lega leiðin­leg hverfi fyrir ríkt fólk, sem er alltaf í út­löndum hvort eð er“

Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri vill tryggja fé­lags­lega blöndun í­búða á fleiri stöðum í Reykja­vík. Þannig verði borgin að betri stað fyrir alla. Þetta sagði Dagur á kynningar­fundi Reykja­víkur­borgar um í­búðar­upp­byggingar í Reykja­vík fyrr í dag.

Lóða- og í­búða­skortur í Reykja­vík hefur verið mikið í um­ræðunni síðustu daga og hafa margir aðilar blandað sér í um­ræðuna. Sam­tök iðnaðarins deila ekki sömu hug­myndum og borgar­stjórnin um á­stæður að baki lóða­skortinum.

Þá lét Vig­dís Hauks­dóttir Dag finna fyrir sér á Face­book í dag. Kallaði hún borgar­stjórann sorg­legan og sagði stefnu Reykja­víkur­borgar í þéttingu byggðar „mann­fjand­sam­lega.“

Dagur sagði í viðtali við Mbl.is að lóðaskortur í Reykjavík sé ekki tilkominn vegna fárra úthlutaðra lóða af borginni, heldur sökum þess að allir viðskiptabankarnir hefðu skrúfað fyrir fjármögnun til verktaka. Sömu­leiðis hafi vaxta­lækkanir Seðla­bankans ýtt undir mikla eftir­spurn í­búða og lóða.

Hann segir að borgin sé að tryggja fé­lags­lega blöndun inni á reitum sem eru á höndum einka­aðila: „Við erum að semja við þá um að á­kveðið hlut­fall á upp­byggingar­reitum, líka þeim sem eru dýrir og glæsi­legastir, verði þannig að fé­lags­bú­staðir hafi for­kaups­rétt og það verði fé­lags­leg blöndun,“ segir Dagur.

Þetta segist Dagur vera að gera til þess að passa að „við endum ekki uppi með ó­geðs­lega leiðin­leg hverfi fyrir ríkt fólk, sem er alltaf í út­löndum hvort eð er. Og síðan fyrir fá­tækt fólk þar sem er ein­hver ömurð, heldur blöndu.“

Hann segir að reynslan sýni fram á að það sé betra fyrir alla: „Skemmti­legri borg, miklu kraft­meiri og við höfum öll gott af sam­neyti hvert við annað.“

Dagur segir að gerðir hafi verið sam­bæri­legir samningar upp á um það bil 4.000 í­búðir á síðustu fimm árum. Þá á­ætlar hann að Reykja­víkur­borg út­hluti 1.089 í­búðum á næsta ári. Þar af eru 330 í­búðir sem falla undir hag­kvæm eða græn hús­næði, 312 í­búðir fyrir hús­næðis­fé­lög og 447 al­mennar í­búðir.

Þá er búið að til­greina rúm­lega 10.000 lóðir undir í­búðar­einingar til næstu tíu ára.