Dagur vill að unglingarnir fái að sofa lengur

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur lagt það til að farið verði í tilraunaverkefni þar sem unglingaskólar í Reykjavík hefja kennslu seinna á morgnana.

Þetta kom fram í máli hans á opnum fundi um Heilsuborgina Reykjavík og lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar sem haldinn var í Tjarnarsal Ráðhússins í morgun.

Dagur opnaði fundinn með erindi um lýðheilsu í Reykjavík og ræddi um lýðheilsu á breiðum grunni og hvað borgir gætu gert til að bæta hana með góðu skipulagi og innviðum, almenningssamgöngum, grænum svæðum, fræðslu og forvörnum og fleiru.

Þá lagði hann til að farið yrði í tilraunaverkefni þar sem unglingaskólar í Reykjavík hefji kennslu seinna á morgnana. Rannsóknir hafi sýnt að í svefni eigi sér stað staðviðgerðaferli og úrvinnsla upplýsinga sem er nauðsynleg til að börn þroskist og dafni, auk þess sem vansvefta ungmenni sýni lakari framleiðni yfir daginn. Kom fram í máli borgarstjóra að embætti landlæknis verði með í þessu tilraunaverkefni.

Á fundinum hélt dr. Erla Björnsdóttir svefnsérfræðingur stutt erindi um svefnvenjur unglinga þar sem fram kom að mataræði, hreyfing og svefn skipti höfuðmáli fyrir andlega og líkamlega heilsu.

Hún sagði að enn væri of lítil markviss fræðsla um svefn en sem betur fer væri það að breytast. Í dag væri málum þannig komið að stór hópur unglinga ætti erfitt með svefn og svæfi of lítið en nauðsynlegur svefn fyrir heilbrigðan þroska ungmenna væri 8-10 tímar á nóttu. Áhyggjuefni væri mikil neysla orkudrykkja með stórskömmtum af koffíni.