Nýr meirihluti í borgarstjórn var tilkynntur í dag en samkvæmt sáttmála nýs meirihluta verður Dagur B Eggertsson áfram borgarstjóri til ársins 2024.
Í samtali við Fréttablaðiðsegir Dagur að hann viti ekki hvað hann ætlar að taka sér fyrir hendur þegar kjörtímabilið endar.
„Þá tek ég við formennsku í borgarráði, sem er ærinn starfi. Hvað framtíðin ber í skauti sér eftir það, því get ég auðvitað ekki svarað frekar en nokkur annar,“ segir Dagur.
Dagur gefur ekkert upp um hvort hann stefni í landsmálin í framtíðinni.
„Ég hef aldrei útilokað neitt í því en er heldur ekki að gefa neinar meldingar um það,“ svarar Dagur og bætir við:
„Þann 16. janúar 2024 verð ég búinn að vera í þessu í 3502 daga og þá tekur einhver nýr kafli við.“
Dagur segir það verði ærið verkefni að fylgja málefnasamningi nýs meirihluta eftir. „Pólitík er ólíkt því sem stundum er haldið fram, ekki einstaklingsíþrótt heldur hópíþrótt, ef íþrótt skyldi kalla.“
Hægt er að lesa viðtal Fréttablaðsins við Dag hér.