Mynd dagsins: Dagur táraðist þegar hann sá húsin sem ætluð eru heimilislausum

Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri viður­kennir að hann tárist ekki oft í vinnunni. Hann átti þó erfitt með að hemja sig þegar starfs­menn fram­kvæmda­deildar borgarinnar sendu honum með­fylgjandi mynd í morgun.

„Tárast ekki oft í vinnunni - en ég komst við þegar fram­kvæmda­deildin sendi mér þessa mynd í morgun. Búið er að koma smá­hýsum - sem ætluð eru heimilis­lausu fólki - fyrir í Gufu­nesi. Þetta hús­næði hefur verið upp­nefnt "gáma­hús­næði" sem er rang­nefni. Þetta fyllir mig stolti,“ segir Dagur en myndina má sjá hér að neðan.

Í at­huga­semdum undir færslunni segir Dagur að upp­setning smá­hýsanna hafi í sumum til­vikum tafist, meðal annars vegna and­mæla úr við­komandi ná­grenni.

„Við þurfum að hafa kjark til að halda okkar striki þegar þjónusta við jaðar­hópa er annars vegar en um­burðar­lyndi og þolin­mæði til að mæta um­ræðu og á­hyggjum. Við erum alls konar. Smá­hýsin eru hluti af nýrri nálgun sem við köllum Hús­næði fyrst og felur í sér að gera ekki stranga kröfu um edrú­mennsku eða bata heldur tryggja hús­næði og að­stæður sem gera fólki í erfiðri stöðu kleift að ná bata. Stefnan byggir á virðingu og trú á fólki og hefur reynst vel.“

Dagur segir að endingu að smá­hýsin verði alls 25 talsins og dreifast þau um alla borg.