Dagur sendi Katrínu langan harðorðan tölvupóst: „Ég hafði gert stór mistök“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur segir að hann hafi gert stór mistök þegar hann sendi harðort bréf á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram í nýrri bók Dags, Nýja Reykjavík, sem fjallað er um á vef Kjarnans.

Dagur segir að hann hafi frétt að ekkert fé ætti að renna til Borgarlínu í samgönguáætlun 2018. Til að bregðast við því sendi hann langan harðorðan tölvupóst. Hann sagði að alvar­leg­ast væri að Borg­ar­lína væri ekki fjár­mögn­uð, eina sem væri fjármagnað væri undirbúningur.

„Ég lagði áherslu á tvennt: að sam­kvæmt grein­ingum SSH og Vega­gerð­ar­innar héldi tafa­tím­inn í umferð­inni áfram að lengj­ast og versna ef Borg­ar­lína yrði ekki að veru­leika. Hitt atriðið þótt mér ekki veiga­minna, að fót­unum yrði kippt undan sam­göngu­hluta lofts­lags­á­ætl­unar stjórn­valda ef þetta færi óbreytt í gegn.“

Hann fór svo fram á fund. „Á honum varð mér ljóst að ég hafði gert stór mis­tök. Með póst­inum hafði ég sent við­hengi, ítar­lega grein­ingu á stöð­unni að mati borg­ar­inn­ar. Þar var hins vegar ekki aðeins að finna þær sam­göngu­grein­ingar sem sér­fræð­ingar SSH höfðu gert til að styrkja okkar mál­flutn­ing heldur einnig mat á samn­ings­stöðu ríkis og sveit­ar­fé­laga. Meðal ann­ars var þarna mat á póli­tískri hættu í mál­inu fyrir Katrínu og VG vegna lofts­lags­mála sem ég taldi að gæti leitt til slita á rík­is­stjórn­inn­i.“