Dagur segist ekki óska neinum þess að ganga í gegnum þetta

„Það er óhugnanlegt að heyra af skemmdarverkum á húsnæði Sósíalistaflokks Íslands og hótunum í garð Gunnars Smára Egilssonar,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.

Hann segir að ógnanir, hótanir, árásir og ofbeldi eigi að fordæma, skilyrðislaust, hver sem í hlut á. Það sé grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi að mynda órofa samstöðu gegn slíku þegar stjórnmálaflokkar og stjórnmálafólk er annars vegar.

„Líkt og fólk þekkir hef ég og fjölskylda mín orðið fyrir því að skotið var á bíl okkar fyrir utan heimilið.

Ég óska engum að ganga í gegnum nokkuð af því tagi. Það er í mínum huga jákvætt og eðlilegt að ræða harða orðræðu og hatursfulla í samhengi við hótanir og ofbeldisverk og það hef ég gert áður. Umræðan þarf að batna og koma upp úr skotgröfunum - og það á að ríkja algjör samstaða þvert á alla pólitík og flokkslínur gegn ofbeldi og hótunum.“