Dagur minnist Helga Ás­geirs­sonar: „Ég á eftir að sakna Helga og borgin er fá­tækari af svip­sterkum og ljúfum manni“

„Dánar­fregnir morgunsins báru með sér að heiðurs­maðurinn Helgi Ás­geirs­son er látinn. Ég get ekki sagt að við höfum þekkst vel en það fylgdi því hlýja og angur­værð að rekast á þá Þór­ólf Árna­son á göngu þeirra um mið­borgina og Þing­holtin. Þeir gengu sannar­lega í hægðum sínum - fet fyrir fet, hægt en örugg­lega - á leið sinni til systranna í Þing­holts­stræti þar sem þeir drukku kaffið, í búðina eða heim,“ skrifar Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri Reykja­víkur á face­book í dag.

„Ég skeiðaði oftar en ekki fram­úr þeim í erli dagsins en ó­sjaldan skiptumst við á kveðjum eða fá­einum orðum. "Nei, sæll Dagur minn. Þarna ert þú. Ég vona að þú njótir dagsins." Þessi ljós­bláu augu og bjarta rödd.“

„Ég á eftir að sakna Helga og borgin er fá­tækari af svip­sterkum og ljúfum manni, og þeirri frið­sæld og góða anda sem fylgdi því að sjá þá fé­laga fylgjast svo fal­lega að. Blessuð sé minning Helga Ás­geirs­sonar. Þór­ólfi færi ég mínar inni­legustu sam­úðar­kveðjur og öðrum vinum og að­stand­endum,“ skrifar Dagur að lokum og birtir mynd sem Baldur Kristjáns­son ljós­myndari tók af Helga og Þór­ólfi.