„Miðflokkurinn hefur valið sér næsta fórnarlamb: þungarokkara. Hvað hefur þungarokkið gert af sér sem réttlætir þessa árás?“
Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í skemmtilegri færslu á Twitter-síðu sinni.
Þar deilir hann frétt Fréttablaðsins um ummæli sem Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, lét falla á Alþingi í morgun.
Þorsteinn gagnrýndi þar nýleg orð Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að ekkert í stefnuskrá Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins gæfi til kynna að flötur væri á samstarfi Samfylkingar við flokkana eftir kosningar.
Þorsteinn gaf lítið fyrir þessi ummæli og sagði á Alþingi í morgun:
„Góður félagi minn á vinstri kantinum lýsti því fyrir mér um daginn að ef Samfylkingin væri tónlistarstefna væri hún lyftutónlist. Miðflokkurinn er meira svona þungarokk og þjóðleg tónlist þannig að það er svo sem ekki á það að róa að menn geti kannski sætt sig við eitt og annað.“
Miðflokkurinn hefur valið sér næsta fórnarlamb: þungarokkara. Hvað hefur þungarokkið gert af sér sem réttlætir þessa árás? https://t.co/gduBEapXQC
— [email protected] (@Dagurb) November 13, 2020