Dagur hrósar Bjarna og Hildi: „Ekki viss um að hann kæmi þessu í gegnum þingflokkinn“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi viðurkennt fyrir sér að hann hefði ekki verið viss um að koma Borgarlínuverkefninu í gegnum þingflokk Sjálfstæðisflokksins.

Hann segir í bókinni Nýja Reykjavík, sem fjallað er um á vef Kjarnans, að það hafi komið babb í bátinn við vinnslu samgöngusáttamálans árið 2019 þegar áformin voru kynnt þingflokki Sjálfstæðisflokksins. „Hann sagði okkur að hann væri ekki viss um að hann kæmi þessu í gegnum þing­flokk­inn. Ég mat það við hann að vera svona hrein­skil­inn. Hann varð að fá fram breyt­ingar á plagg­in­u,“ segir Dagur.

Þingmennirnir hafi viljað fá Sundabraut inn í sáttmálann líka, við því hafi orðið fyrir utan að fjármögnunin væri ekki tryggð. Dagur segir að hann beri virð­ingu fyrir því að Bjarni hafi tekið slaginn við eigið fólk. „Með því sýndi hann ótví­ræða leið­toga­hæfi­leika og tókst að halda dyrum flokks­ins í borg­inni opnum fyrir grænni fram­tíð. Umskipti í við­horf­um, fram­tíð­ar­sýn og nýtt fólk í borg­ar­stjórn­ar­flokknum er í mínum huga for­senda þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði stjórn­tækur í meiri­hluta­sam­starf í borg­inni í náinni fram­tíð.“

Dagur er einnig hrifinn af Hildi Björnsdóttur, sem hefur skorað Eyþór Arnalds á hólm í Sjálfstæðisflokknum í borginni og vísar í grein hennar um samgöngumál. „Með þess­ari öfl­ugu grein gerði Hildur algjör­lega ljóst hvar hún stendur í afstöð­unni til stærstu spurn­ing­anna um sam­göngu­mál og þróun borg­ar­innar og kall­aði eftir hug­rekki til breyt­inga.“