Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að kynslóðarof og klofningur innan Sjálfstæðisflokks hafi orðið til á hans vakt.
Dagur gerir pistil Vilhjálms í Morgunblaðinu í dag að umtalsefni á Facebook-síðu sinni, en í pistlinum kallar hann eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn tali einni röddu og bjóði ekki fram klofinn lista í borginni, þá sérstaklega í skipulags- og samgöngumálum.
„Gamla góða Villa er málið skylt því kynslóðarof og klofningur innan Sjálfstæðisflokksins varð nánast til í þessum málum á hans vakt. Af því öllu er ævintýraleg saga sem fléttast í gegnum furðumál eins og kaup á uppstoppuðum hana, lokun bjórkælis í Austurstræti, REI-málið, gjöf á óflughæfri svifflugvél – og nánast gjöf á 46% hlut borgarinnar í Landsvirkjun - og brunaliðsstörfum í fullum skrúða sem enduðu á bar.“
Dagur bætir við að Vilhjálmur hafi sjálfur skipt um skoðun á flugvallarmálinu til þess eins að geta unnið Gísla Martein Baldursson í prófkjöri. Þetta hafi bara verið byrjunin.
„Allt þetta var reifara og farsakennt en óneitanlega með harmsögulegum blæ og er upplýst og rakið – líklega í fyrsta skipti á prenti – í nýju bókinni minni, Nýju Reykjavík. Hvet áhugafólk um málefni dagsins – og rætur hins djúpa klofnings Sjálfstæðisflokksins í borginni - til að renna í gegnum þessa kafla. Sú saga er öll með ólíkindum,“ segir Dagur.