Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar hefur ekki svarað símtölum Hildar Björnsdóttir oddvita Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í frétt Vísisen Hildur segist hafa rætt við alla oddvitana í borginni eftir kosningar, utan tveggja.
„Þetta eru auðvitað bara óformleg samtöl og þetta er allt á því stigi málsins að fólk gefur agalega loðin svör, eins og þið kannski takið eftir hjá oddvitum allra flokkanna,“ sagði Hildur í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Einar Þorsteinsson fundaði bæði með Hildi og Degi í gær en oddvitar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar tilkynntu það í gær að þeir ætluðu að halda saman fyrst um sinn í viðræðunum.
Mikið hefur rætt hvort það væri ekki svik við kjósendur Framsóknar, gengi flokkurinn inn í samstarf með sitjandi meirihluta sem féll í síðustu kosningum.
„Jú, auðvitað finnst manni það. Ekki síst ef hann færi saman með þessari blokk sem nú hefur stillt sér saman: Samfylking, Píratar, Viðreisn, jafnvel þótt þeim hafi verið hafnað í kosningunum, þessari blokk og þessum meirihluta,“ segir Hildur.
„Hann féll, og ekki naumlega heldur með tveimur mönnum sem eru nokkuð skýr skilaboð. Manni þætti það vera svolítið skrítið að vera flokkur sem boðar fyrst og fremst breytingar og ganga svo inn í fallinn meirihluta. Það fylgja því engar breytingar,“ segir Hildur.
„Ég hef tekið upp símann og hringt í alla oddvita, allra framboða. Það er mín vinnuregla sem oddviti stærsta flokksins. En svo er það bara spurning hverjir eru kurteisir og taka símann og hverjir. Hann hefur ekki svarað símanum. Ég hringi í alla,“ segir Hildur að lokum.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.