Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, fékk boð í bólusetningu á föstudag. Það er skemmst frá því að segja að Dagur hafnaði boðinu en hann átti að mæta í morgun.
Dagur segir frá þessu á Facebook-síðu sinni en boðið kom með sms-i á föstudag og átti hann að fá fyrri skammtinn af bóluefni Pfizer.
„Við frekari eftirgrennslan kom í ljós að verið var að bjóða mér sem lækni. Það góða boð mun ég því ekki þiggja þar sem ég er ekki að hitta sjúklinga. Ég er hins vegar með gigt og á ónæmisbælandi lyfjum. Og fólk með undirliggjandi sjúkdóma er einmitt í næsta forgangshópi,“ segir Dagur sem segir að fyrirspurnin um þetta bólusetningaboð dagsins hafi dregið fram ánægjulegar staðreyndir sem eru líklega ekki á allra vitorði.
„Í þessari viku geta orðið margir stórir bólusetningardagar þótt þeir hafi ekki verið staðfestir og í næstu viku og þar næstu ættu stórir hópar fólks með undirliggjandi sjúkdóma að geta fengið bólusetningu. Alls eru þetta 50.000 manns og allstór hópur er þegar búinn að fá sinn skammt vegna aldurs og ég held að þetta muni ganga hratt og vel. Forgangsraðað verður eftir aldri og mun ég glaður þiggja minn skammt þegar kemur að mér.“
Dagur segir að þetta þýði að það styttist í leikskólastarfsfólk og kennara og aðra forgangshópa og síðan almenna bólusetningu fyrir alla þótt nákvæm tímasetning liggi ekki fyrir.
„Allt er þetta í traustum höndum heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og mér heyrist allir vera á einu máli um að skipulag og utanumhald allt sé til fyrirmyndar.“