Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, greindi frá því á Twitter fyrr í dag að borgarráð hafi fest kaup á húsnæði í Laugardalnum. Það eitt og sér telur ekki til tíðinda en það er tegund húsnæðisins sem kemur á óvart.
Húsnæðið sem um ræðir hýsti áður kynlífstækjaverslunina Adam og Evu en Dagur segist ekki vita til þess að borgin hafi áður keypt hjálpartækjaverslun. „Húsnæði Adams og Evu er nú okkar!“ segir Dagur í færslu um málið.
Hann greinir frá því að borgin hafi einnig keypt húsnæði arkitektastofu við hliðina á versluninni. „Planið er andlitslyfting þessa gamla hverfiskjarna við Kleppsveg og innrétting nýs 120 barna leikskóla - fyrir Laugardal og hina nýju Vogabyggð. Sannarlega margar flugur í einu höggi!“
Fjölmargir hafa brugðist við færslu borgarstjórans og eru flestir sammála um að um flott framtak sé að ræða.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að kaupa hús. Ekki svo óalgengt en ég man ekki til þess að við höfum áður keypt hjálpartækjaverslun. Húsnæði Adams og Evu er nú okkar! 1/2 pic.twitter.com/csfVWdrdSA
— [email protected] (@Dagurb) November 12, 2020