„Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn er með geggjaða tilraun í gangi. Að prófa að vera með allar skoðanir og ná þannig til allra hópa,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á Twitter-síðu sinni.
„Fyrir mánuði tók xD upp tillögu Vigdísar Hauks um ráðningabann. Í kvöld studdi xD tillögu Kolbrúnar Baldurs um hundrað ný stöðugildi. Sísvona,“ segir hann og heldur áfram:
„Í september vildi Sjálfstæðisflokkurinn skipuleggja Keldnalandið undir íbúðir. Í kvöld lagði flokkurinn til að sama svæði yrði hreint atvinnusvæði. Forsíðumál hjá Mogga. Bíð í ofvæni eftir tillögum um skuldalækkun og auknar framkvæmdir. Bæði. Nei, það var víst líka komið.“
Í september vildi Sjálfstæðisflokkurinn skipuleggja Keldnalandið undir íbúðir. Í kvöld lagði flokkurinn til að sama svæði yrði hreint atvinnusvæði. Forsíðumál hjá Mogga. Bíð í ofvæni eftir tillögum um skuldalækkun og auknar framkvæmdir. Bæði. Nei, það var víst líka komið.
— [email protected] (@Dagurb) January 19, 2021