Leiðarahöfundur Morgunblaðsins í dag skýtur býsna föstum skotum að Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur. Þar er hann meðal annars kallaður „ábyrgðarlaus ónytjungur“. Leiðaraskrif Morgunblaðsins hafa oft vakið athygli en í dag er gengið býsna langt.
Leiðarar blaðsins eru aldrei merktir höfundi og því ekki ljóst hvert heldur á penna. Líkur standa þó til að þar sé Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi borgarstjóri, á ferðinni.
Leiðarinn hefst á þessum orðum: „Stundum er sagt að þeir séu til sem flestu vilji fórna fyrir frægðina,“ áður en pennanum er beitt af hörku gegn borgarstjóranum:
„Dagur B. Eggertsson hefur lengi sýnt að hann þráir að komast á mynd þótt tilefnið sé ekkert. Það var eftir því tekið þegar borgarstjórinn var tekinn að iða óþægilega í skinni sínu þar sem honum þótti veirufræðingar og aðilar tilheyrandi þeim fyrirferðarmiklir í kastljósinu, með beinar útsendingar dag eftir dag en enginn spurði um Dag eða spurði Dag. Dagur Eggertsson lét það þá berast að það stappaði nærri því að vera næstum frétt að fyrir alllöngu hefði hann hreinlega velt því fyrir sér að fara í framhaldsnám í veirufræðum.“
Áfram er skotið á Dag:
„Dagur hefði getað framlengt frægðartíma sinn hefði hann getið þess að fyrir fáeinum árum munaði minnstu að flugvél sem hann var farþegi í hefði millilent í Los Angeles. Þar hefði hann sem sagt verið hársbreidd frá því að verða með ríkustu leikurum í Hollywood, t.d. í þúsundþátta læknadrama þar sem viðbjóðsleg veira kom iðulega við sögu. Næsta tilraun fór ekki mikið betur þegar Dagur birtist hjá einum bústnasta ríkisbubba Bandaríkjanna, Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóra í New York, og fyllti hann af fjarstæðum um að læknissnilld hans sjálfs hefði ráðið úrslitum í árangri Íslendinga í veiruslagnum. Enginn hér kannaðist við að kauði hefði nokkurs staðar komið þar nærri.“
Leiðarahöfundur segir að það sé engu líkara en að Dagur héldi að hægt væri að sleppa með að segja af sér frægðarsögur í útlöndum og það myndi aldrei fréttast í „ranni þeirra sem borga honum launin og sjá um að lagfæra torgið hið næsta húsgarði hans fyrir fjárhæðir sem venjulegir borgarbúar sjá ekki í sinni grennd.“
Leiðarahöfundur snýr sér næst að bókhaldi Reykjavíkurborgar og bendir á skuldasöfnun hennar.
„Eyþór Arnalds borgarfulltrúi benti á nú síðast í grípandi örgrein hér í blaðinu hversu óglæsilegt það sé fyrir Reykvíkinga að horfa á óheyrilega skuldasöfnun í borgarstjórn núna og lausbeislaðar skýringar sem gefa til kynna að það sé fullkomið stjórnleysi í fjármálum höfuðborgarinnar. Það var sláandi að sjá myndir sem fylgdu og sýna þær ógöngur sem stefnt er í hraðbyri. Ekki tekur betra við beri borgarbúar skuldir Reykjavíkur á mann saman við sambærilega mynd af nágrannasveitarfélögunum. Horfi íbúar í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ á skuldir deilt á þá og hins vegar á sambærilega skuldamynd Reykvíkinga þá sjá þeir tvöfalt(!) Og þakka sínum sæla fyrir að sitja ekki uppi með ábyrgðarlausa ónytjunga á borð við þá sem fylla Bloomberg af lygisögum.“