Dagur er æfur og líkir þessu við atriði úr Verbúðinni: „Á þetta bara að vera svona?“

„Fréttir og viðtöl af kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík er einsog sena úr Verbúðinni. Bókstaflega.“

Svona hefst færsla Dags B. Eggertssonar borgarstjóra þar sem hann fjallar um kaup Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík.

Í færslu sinni deilir Dagur greiningu hagfræðingsins Þórðs Gunnarssonar á kaupunum en þar er bent á að kaupverðið virðist fyrst og fremst snúast um kvótan, sem á jú að vera þjóðareign.

„Meðfylgjandi greining á kaupverðinu bendir eindregið til þess að kaupverðið taki EKKI mikið mið af rekstri eða rekstrarárangri Vísis heldur skýrist fyrst og fremst af hlutdeild Vísis í þorskkvótanum - einmitt, kvótanum sem er eða á að heita þjóðareign.“

Dagur segir að með þessu komi í ljós að ekkert sé að marka fyrirheit stjórnmálanna í málaflokknum, og því séu engar breytingar líklegar, og því spyr Dagur: „Á þetta bara að vera svona?“

„Helstu fyrirtæki landsins í sjávarútvegi eru með öðrum orðum að lýsa því yfir með verðlagningunni að ekkert sé að marka orð og fyrirheit stjórnmálanna um að innheimta eigi eðlilegan arð af auðlindinni þannig að þeir fjármunir renna til þjóðarinnar. Og að engar breytingar á því séu líklegar. Á sama tíma horfum við upp á vanfjármagnað heilbrigðis- og velferðarkerfi án þess að lausnir á því séu í sjónmáli. Er eðlilegt að viðbrögð stjórnmálanna takmarkist við umræðu um kvótaþak og samkeppnissjónarmið? Á þetta bara að vera svona?“