Dagur búinn að fá bóluefni: „Ég er fullur þakklætis“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fékk bóluefni Pfizer gegn COVID-19 í Laugardaglshöllinni í dag. Dagur greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni, en stutt er síðan Dagur greindi frá því að hann hefði hafnað boði í bólusetningu. Þá voru aðstæður aðrar en þær eru í dag.

Dagur er með undirliggjandi gigtarsjúkdóm og á ónæmisbælandi lyfjum og var sá hópur bólusettur í dag. Dagur fékk boð um bólusetningu á dögunum á þeim forsendum að hann væri læknir, en þar sem Dagur sinnir ekki sjúklingum dags daglega hafnaði hann boðinu.

„Hæ, Dagur, ég er systir þín í gigtinni,“ sagði góð kunningjakona mín og brosti í gegnum grímuna. Við lentum sem sagt saman í röðinni við Laugardalshöllina í dag. Aldrei þessu vant var ég með allt á hreinu, því Rúnar bílstjóri í ráðhúsinu hafði farið í bólusetningu fyrr í dag og sagði mér nákvæmlega hvernig þetta gengi fyrir sig,“ segir Dagur í byrjun færslu sinnar.

Hann segir að allt hafi gengið vel og heilsugæslan bólusett hratt og örugglega.

„Ég brosti hringinn og skellti næstum upp úr þegar ég áttaði mig á því að reyndustu og bestu yfirmenn umferðarlögreglunnar með sjálfan Árna Friðleifsson í broddi fylkingar voru að stýra umferðinni úr anddyrinu, í stólana og þaðan í fimmtán mínútna hvíld til að tryggja að enginn fengi ofnæmisviðbrögð.“

Eins og fram kemur hér að framan voru hundruð manns með undirliggjandi sjúkdóma á öllum aldri mættir á svæðið og segir Dagur að allir hafi virst ánægðir með að hafa fengið bóluefni.

„Ég sagði ykkur frá því um daginn að ég afþakkaði að fá bólusetningu sem læknir - en um leið að ég myndi svo sannarlega þiggja minn skammt þegar kæmi að þeim sem eru á ónæmisbælandi lyfjum. Og sá dagur er sem sagt dagurinn í dag. Einhverjir sáu reyndar ástæðu til að efast um að ég myndi þiggja bóluefni. En það var alltaf fjarri mér. Ég vildi bara ekki flokkast í forgangshópi með læknum sem sinna sjúklingum heldur vildi fara um leið og fólk í sama forgangshópi og ég. Við fengum Pfizer, einsog þúsundir þessa vikuna. En ég tek fram að ég hefði þegið hvaða bóluefni sem Þórólfur sóttvarnarlæknir hefur gefið grænt ljós á fyrir minn aldurshóp.“

Dagur heldur áfram:

„Ég er fullur þakklætis og aðdáunar á öllu skipulaginu. Hjartað tók svo auka gleðihopp þegar gömul bekkjarsystir úr Árbæjarskóla kallaði til mín þar sem ég skeiðaði út - mér fannst sérstaklega gott að hún væri að fá bólusetningu líka. Þær voru greinilega margar systur mínar í gigtinni sem fengu sprautuna sína í dag. Samkvæmt áætlununum fá þúsundir fleiri skammtinn sinn í vikunni - og þeirri næstu. Á meðan við megum hafa okkur öll við í baráttunni við að takmarka smitdreifingu í samfélaginu eru bólusetningar góðu heilli að ná flugi.“