Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur hljóp á sig á Twitter í kvöld þegar hann var byrjaður að fagna sigri Dana á Frökkum áður en leiknum lauk. Danir voru yfir Frökkum nánast allan leikinn, nokkrum mínútum fyrir leikslok sagði Dagur á Twitter:
„Þetta er svakalegt,“ og sagði Ísland í undanúrslit undir myllumerki.
Vilja margir meina að þarna hafi Dagur skemmt fyrir, svokallað jinx.
Jinxið https://t.co/AKYIwcZxbO
— Sigurður Ingi Ricardo (@Ziggi92) January 26, 2022
Ansans Dagur. https://t.co/fjyqaYr91R
— Jens 🇮🇸 (@PxrpleHxze) January 26, 2022
Jóhann Óli Eiðsson lögfræðingur gengur svo langt að krefjast afsagnar:
Ég krefst afsagnar ef þetta endar sem jinx. https://t.co/3k4EgjGsXC
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) January 26, 2022