Aðeins tíu prósent eru ánægð með að Dagur B. Eggertsson skuli bjóða sig aftur fram til borgarstjóra, á það reyndar aðeins við um hlustendur Útvarps Sögu.
Á vef stöðvarinnar segir að afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu sé ekki ánægður með að Dagur B. Eggertsson bjóði sig fram til endurkjörs. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus.
85 prósent sögðu nei.
Veitingamaðurinn Ólafur Örn vakti athygli á könnunni á Twitter og sagði hana skell fyrir Dag. Dagur sjálfur tók undir það með háðstón: „Þetta myndi einhver segja að væri vísbending um að ekki allir hlustendur Útvarps Sögu muni kjósa mig,“ sagði Dagur og bætti við: „Guðni forseti lenti í því sama.“
Já, vissulega. Þetta myndi einhver segja að væri vísbending um að ekki allir hlustendur Útvarps Sögu muni kjósa mig. Guðni forseti @sagnaritari lenti í því sama. https://t.co/aBMZ8PvI7d
— [email protected] (@Dagurb) January 12, 2022
Vísar hann þá í könnun útvarpsstöðvarinnar frá 2020 þar sem spurt var hvort Guðni ætti að bjóða sig aftur fram til forseta Íslands og var mikill meirihluti á móti því, hlaut hann á endanum 92 prósent atkvæða.