„Þetta var svo fyrirséð að ég gat varla horft á þetta og held ég hafi staðið þrisvar upp meðan á atriðinu stóð,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Óhætt er að segja að þættirnir Verbúð á RÚV hafi slegið í gegn undanfarin sunnudagskvöld, en í síðasta þætti birtist atriði sem er mörgum enn í fersku minni. Þá sagaði þingmaðurinn Steingrímur, í túlkun Benedikts Erlingssonar, af fingri sínum með vélsög. Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra, sneiddi einmitt framan af tveimur fingurgómum löngutangar og þumalfingurs á heimili sínu í desember 1984.
Í Fréttablaðinu í dag er málið rifjað upp og rætt við Dag sem skrifaði einmitt ævisögu Steingríms og þekkir sögu hans manna best. Dagur segist hafa átt erfitt með að horfa á atriðið þar sem það lá í loftinu að Steingrímur myndi saga í fingurinn á sér.
Dagur segir rétt að Steingrímur hafi sannarlega sagað í þumalinn á sér. „Og missti reyndar hluta hans. Sú sög var í kjallaranum hjá honum og ég held ég muni það rétt að hann hafi verið að saga rekavið af Ströndum í panel í kjallarann hjá sér þegar slysið var. Sannarlega ekki að viðstöddum blaðamönnum en sannleikurinn er sá að þrátt fyrir þetta slys þá var Steingrímur lunkinn smiður. Hann fékk ýmsu góðu áorkað í pólitíkinni en var aldrei stoltari en þegar hann var að sýna manni smíðaverkin.“
Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.