Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er líklegast með frægustu krullur Íslands, hárið hans er löngu orðið að pólitísku vörumerki. Því er hann reglulega spurður út í sjampó, hársprey og hvaðeina sem tengist hári.
Vala nokkur stakk upp á því að Dagur setti hárgreiðslumorgunrútínuna í svokallað Story á Instagram.
Blaðamaðurinn Ása Ninna Pétursdóttir sagði á Twitter að þetta væri góð hugmynd og stakk upp á því við borgarstjórann að þau tækju höndum saman og opnuðu umræðuna um krullur.
Dagur ætlaði sko ekki að falla í þá gildru:
„Ég hef nú látið plata mig í mjög margt en þetta hljómar eins og stórhættuleg hugmynd. Væri hrikalegur skellur að vera afhjúpaður sem hárrútínulaus krulluhaus. Og það í beinni á insta,“ segir hann glettinn. „Vil líka halda leyndu að ég sofi í súrefnisklefa með gúrkumaska.“