Dagur ætlar ekki að bjóða sig fram til formanns – Leiðin greið fyrir Kristrúnu?

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig ekki fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í október næstkomandi.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en nafn Dags og Kristrúnar Frostadóttur höfðu helst verið nefnd sem hugsanlegir arftakar Loga Einarssonar sem lætur af formennsku í haust. Í viðtali í blaðinu segir Dagur að hann útiloki ekki þátttöku í landsmálum með þingmennsku síðar en að sinni muni borgin eiga hug hans allan.

„Ég hef auðvitað skynjað mikinn stuðning. Fólk hefur kallað eftir nýrri ríkisstjórn sem yrði mynduð frá vinstri yfir á miðjuna svipað og í Reykjavík. En ég er að hefja nýtt kjörtímabil í borginni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var langsótt að ég byði mig fram til formennsku í flokknum,“ segir Dagur sem útilokar formannsframboð í Samfylkingunni.

„Já. Mitt hlutverk er frekar nú að styðja við þá sem veljast til forystu. Ég held að það skipti mjög miklu máli að Samfylkingin sæki fyrri styrk sinn.“

Eins og að framan greinir hefur nafn Kristrúnar Frostadóttur verið nefnt og hún er sögð ætla að gera það upp við sig á næstu dögum hvort hún ætli að bjóða sig fram. Fari svo að hún ákveði formannsframboð ætti leiðin fyrir hana að vera nokkuð greið nema eitthvað óvænt komi upp.