Dagur ætlar að afhjúpa ákvörðun sína: „Ég vona að það mæti skilningi“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, er nú í sóttkví eftir að barn hans greindist með Covid-19. Hann ætlar að standa við loforð sitt um að afhjúpa ákvörðun sína um hvort hann ætli að bjóða sig fram í borgarstjórnarkosningunum í vor eftir hátíðarnar, en Dagur segir í færslu á Facebook að hann ætli að bíða eftir að hann losnar úr sóttkví.

„Það fór þá aldrei svo að ég eða fjölskyldan færum í gegnum faraldurinn án þess að lenda í sóttkví. Allt er einu sinni fyrst. Eftir að eitt barnanna greindist með Covid heldur fjölskyldan til á heimilinu í alls konar fjarvinnu og fjarfundum - á öllum hæðum. Vonum að það versta sé afstaðið og aðrir hafa hingað til ekki smitast. Öllum líður vel,“ segir hann.

„Nokkrir fjölmiðlar hafa verið í sambandi í dag og gær til að spyrja um framboðsmál mín, minnugir þess að ég sagðist myndu gera grein fyrir þeim eftir hátíðar. Margir hafa verið í sambandi við mig um þau mál að undanförnu sem ég er þakklátur fyrir.“

Hann ætlar að bíða örlítið eftir að afhjúpa ákvörðun sína: „Ég vona að það mæti skilningi að ég muni ekki segja frá niðurstöðu minni fyrr en sóttkví lýkur sem verður vonandi um helgina eða strax eftir helgi.“