Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er á leið til Kaupmannahafnar og svo beint til Parísar síðar í þessum mánuði. Dagana 22. til 23. nóvember mun hann mæta á árlegan leiðtogafund í Kaupmannahöfn og ráðstefnu WHO European Health Cities.
Þaðan mun hann fljúga til Parísar 23. til 25. nóvember á fund með fulltrúum aðildarríkja OECD vegna Champion Mayors Initiative um hagvöxt fyrir alla. Með borgarstjóra í för verður aðstoðarmaður.
Bréf um fyrirhugaða ferð borgarstjóra til Kaupmannahafnar og Parísar var lagt fram í borgarráði í gær og sá Helga Þórðardóttir, varaborgarfulltrúi og áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, ástæðu til að leggja fram bókun þar sem hún gagnrýndi utanlandsferðir borgarstjóra.
„Borgarstjóri ætlar núna til Kaupmannahafnar og Parísar. Nýlega voru kynntir reikningar borgarinnar og fjárhagsáætlun og aldrei hefur sést svo slæm útkoma. Fjármálastjóri hefur sagt að velta þurfi við hverri krónu. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp hvort ekki sé sjálfsagt að borgarstjóri gæti hófs í ferðum erlendis og fari aðeins til útlanda í undantekningartilfellum. Eftir COVID eru flestir færir í notkun fjarfunda og svo má notast við streymi þar sem það býðst. Flokkur fólksins minnir á að margt smátt gerir eitt stórt og sárlega vantar að streyma meira fjármagni í beina þjónustu við börn sem dæmi. Á biðlista barna eftir fagþjónustu skóla eru núna 2.048 börn.“