Dagþóri brugðið þegar hann fékk reikninginn: Þarf að hætta í skemmtilegustu vinnu í heimi

„Auðvitað vissi ég að ég fengi bakreikning, en mér kom upphæðin á óvart,“ segir Dagþór Haraldsson, leiðsögumaður með erlenda ferðamenn, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Dagþór segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við ríkissjóð. Hann líkir honum hreinlega við melludólg og sjálfum sér við fórnarlamb mansals.

„Mansal er þegar einhver aðili hagnast á annaðhvort neyð eða aðstæðum annars aðila. Sjálfur gerði ég mér ekki grein fyrir að ég hafði lent í mansali þar til, annaðhvort vegna mistaka eða aulaskapar, Tryggingastofnun ríkisins sendi mér bakreikning fyrir 701.446 krónur,“ segir Dagþór.

Einskis nýtur eftir 67 ára aldur

Í grein sinni tekur hann fram að hann búi einn eftir að eiginkona hans lést.

„Ég hætti vinnu hjá mínum fyrrverandi vinnuveitanda þegar ég varð 67 ára, enda töldu þeir að eftir þann aldur væru menn til einskis nýtir. Síðan þá hef ég unnið sem leiðsögumaður enda er það lífsnauðsynlegt fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði að hitta fólk og fá að vinna.“

Aðstæður höguðu því þannig að Dagþór sótti ekki um ellilífeyri fyrr en hann varð rúmlega sjötugur en þá hafði hann ekkert að gera vegna kórónuveirufaraldursins.

„Þegar ég gerði greiðsluáætlun til TR í desember 2020 fyrir árið 2021 hafði ég enga vinnu. Ég vissi hvað ég fékk úr lífeyrissjóðum en gat ekki áætlað vinnulaun. Síðan var það svo að ég hafði yfirdrifið nóg að gera síðan í júní 2021. Ég gerði mér fljótlega grein fyrir að ég yrði að stoppa greiðslur frá TR vegna þess að ég hafði bara ágæt laun, að vísu með mikilli vinnu, þannig að sl. haust hafði ég samband við TR og eftir ráðleggingar þeirra var ákveðið að stoppa greiðslur til mín og gera síðan árið upp eftir álagningu skatta fyrir 2021,“ segir Dagþór.

Mun finna sér eitthvað annað að gera

Hann segir að einhvern veginn, vegna áðurnefnds aulaskapar TR eða mistaka, hafi það ekki gengið eftir og hann því fengið greitt áfram.

„Síðustu samskipti voru í desember og fékk ég það svar að vegna „kerfisbreytinga“ hefði þetta ekki gengið eftir. Þannig að núna er ég með ofgreiddan ellilífeyri frá TR. Ríkið tekur fullan skatt af mínum launum, að auki skerða þeir ellilífeyrinn sem ég hef svo sannarlega unnið fyrir eftir að hafa verið á vinnumarkaði síðan 1966. Og svo alveg undarlegt að TR hefur væntanlega á skattskýrslunni séð að einhvers staðar frá hef ég fengið verðbætur,“ segir Dagþór en verðbæturnar kallar hann froðu.

„Fólk gerir sér væntanlega ekki grein fyrir því að það borgar fjármagnstekjuskatt af froðunni, en ég varð undrandi að þar fyrir utan lækkaði TR greiðslur til mín vegna þessarar froðu. Þannig að þetta er enn ein tvísköttunin. Þökk sé TR að vekja athygli mína á þessu „réttlæti“. Héðan í frá mun ég aðeins klára þær ferðir sem ég hef þegar samþykkt við mína ágætu vinnuveitendur. Þær ferðir eru til enda þessa árs. Þaðan í frá finn ég mér eitthvað annað til að sýsla við án þess að verða fórnarlamb mansals.“

Um ástæður þess að hann líkir aðstæðum sínum við mansal segir hann það vitað að melludólgurinn tekur peningana af vændiskonum fyrir þeirra vinnu og stingur í eigin vasa. Hann kveðst upplifa það nákvæmlega sama.

Vill vinna og þar með gott fórnarlamb

„Ég vil vinna og er þar með gott fórnarlamb fyrir ríkissjóð Íslands. Ég verð ekki seldur mansali aftur og síðasta leiðsögn er skammt undan og þá verður einum aðila færra í ferðaþjónustunni. Í þessu tilfelli er ríkissjóður Íslands að hafa óeðlilegan hag af eldri borgurum og megi þeir skammast sín ef þeir kunna það og þeim má líkja við melludólginn,“ segir Dagþór sem kveðst hafa vitað að bakreikningurinn kæmi en upphæðin hefði komið honum á óvart.

„En ég var að fá orlofið mitt inn á reikninginn minn og það var ríflega 655 þúsund, þannig að ég mun greiða TR skuldina mína 1. júní og þarf ekkert byrjun á endurgreiðslu í september, eins og þeir bjóða mér náðarsamlegast upp á. Niðurstaðan er að hætta skemmtilegustu vinnu sem ég hef unnið og reyna að finna annan farveg núna þegar ég á tvo mánuði í 72 ára afmælið,“ segir Dagþór sem endar grein sína í Morgunblaðinu á þessum orðum:

„Ég verð ekki seldur mansali aftur og læt melludólginn ekki hagnast á mér framar. Jafnframt verð ég ekki lengur styrkasti aðili ríkissjóðs miðað við hlutfall af tekjum. Manni er óskiljanlegt að alþingismenn, sem þykjast allt vilja gera fyrir fólkið, skuli enn láta þetta ranglæti viðgangast.“