Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, lætur KSÍ heyra það á Instagram í dag.
Hún gagnrýnir þar vinnubrögð Knattspyrnusambandsins en Aron Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins, lék í dag sinn 100. A-landsleik í dag gegn Sádi Arabíu.
Knattspyrnusambandið gaf Aroni Einari treyju í gjöf með tölunni 100 á.
„Birkir Bjarna fékk treyju eftir sinn leik í september 2021,“ skrifar Dagný á Instagram.
„Aron Einar fékk treyju eftir sinn leik í dag. Við Glódís Perla [Viggósdóttir] erum ennþá að bíða eftir okkar 100 leikja treyju síðan í apríl! Litlu hlutirnir í þessari blessuðu baráttu alla daga,“ bætir Dagný við.
Dagný og Glódís Perla léku báðar sinn 100. landsleik gegn Hvíta-Rússlandi hinn 7. apríl í undankeppni HM 2023 í Belgrad í Serbíu. En hafa enn ekki verið heiðraðar fyrir afrek sín.