Dag­for­eldri sendir borgar­stjórn tóninn: „Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og á­vallt reiðu­búin“

Kol­brún Hildur Gunnars­dóttir, sem hefur starfað sem dag­for­eldri í 33 ár og segist sjálf lík­legast hafa gætt um 2000 barna er allt annað en sátt með Reykja­víkur­borg.

„Dag­for­eldrar sem starfa í Reykja­vík horfa nú uppá fyrir­fram­séða stöðu for­eldra í borginni. Það er með ó­líkindum að sjá van­mátt þeirra sem ráðum ríkja og þykjast ekki hafa séð það fyrir. Við vitum öll að það koma tölur á hverju ári um hversu mörg börn fæðast og af þeim líkindum má ráða hversu mörgum börnum vantar gæslu ár hvert. Að horfa á um­komu­lausa stjórn­endur þessa dag­gæslu/ leik­skóla­sviðs, er með ó­líkindum. Í ára­tugi hafa dag­for­eldrar brúað bilið. Við fáum þó aldrei hrós fyrir það. Við höfum sparað borginni miljarða, en hvergi erum við nefnd. Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og á­vallt reiðu­búin og höfum verið,“ skrifar Kol­brún.

„Metnaðar­leysi borgarinnar í gegnum síðustu ár hefur breytt okkar starfs­um­hverfi og fá­lát svör borgarinnar gert það að verkum að dag­gæsla í heima­húsi með 5 börnum í gæslu er að hverfa. Fyrir nokkrum árum vorum við 300 starfandi. Við erum tæp 90 í dag og förum fækkandi.“

„Sé horft til nær­liggjandi sveitar­fé­laga er staðan allt önnur. Metnaðar­full niður­greiðsla og Það að for­eldrar hafi val um marg­mennar gæslur og eða fá­menna hljóð­láta gæslu í heima­húsi sem hefur leyfi til slíkra starfa er þar í há­vegum höfð. Nei!! Borgin á­kvað að við værum börn okkar tíma og stofnanir væru eina rétta leiðin... en hvað gleymdist í jöfnunni?“ heldur Kol­brún á­fram.

Hún segir að það þurfi að manna leik­skóla­byggingar því þær manna sig ekki sjálfar.

„Nú erum við öll sjálf­sagt undrandi. Því kosninga­lof­orðin hljómuðu uppá fullt af leik­skólum og glans­myndin var svo skýr... en grunnurinn að byggingunni var varla til staðar.Eitt­hvað þarf að laga svo starfs­fólk sækist í að vinna á leik­skólum.“

„Metnaðurinn var sem­sagt bara: kosninga­lof­orð sem átti að svíkja. Eins og staðan er núna hefði verið lag að við gætum rétt hjálpar­hönd svo for­eldrar í borginni sitji ekki á ver­gangi með sín börn. Reykja­víkur­borg á­kvað að gleyma ykkur kæru for­eldrar og okkur!“

„Mín orð til borgarinnar: Hisjið upp um ykkur buxurnar og eflið dag­for­eldra­starfið sem sam­hliða gæslu. Mín stétt hefur staðist tímans tönn og með metnaði frá hendi borgarinnar væri hægt að brúa bilið svo öldurnar lægi um stund,“ skrifar Kol­brún að lokum.