Lyfjastofnun og embætti landlæknis hafa áreiðanlegar upplýsingar um að sjúklingar með Covid-19 hafi tekið lyfið Soolantra (ivermektín) 10 mg/g um munn og rökstuddan grun um að það hafi haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Lyfjastofnunar og embættis landlæknis. Lyfið er einungis ætlað til notkunar útvortis á húð til meðferðar við bólum, nánar tiltekið til að meðhöndla húðsjúkdóminn rósroða. Mikilvægt er að það sé aðeins notað á andlitshúð en ekki aðra líkamshluta. „Lyfið er alls ekki ætlað til inntöku,“ segir í yfirlýsingunni.
„Forðast skal að kremið berist á augnlok, varir eða slímhúðir, svo sem í nefi, munni, augum eða í meltingarvegi. Ef kremið berst fyrir slysni á slímhúð sbr. framangreint skal þvo svæðið tafarlaust með miklu vatni,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá kemur fram að aukaverkanir sem geta hlotist af inntöku kremsins eða ofskömmtun ivermektíns geta verið: Útbrot, bjúgur, höfuðverkur, sundl, þróttleysi, ógleði, uppköst og niðurgangur. Fleiri aukaverkanir sem tilkynnt hefur verið um eru: krampar, ósamhæfðar vöðvahreyfingar, mæði, kviðverkir, náladofi og ofsakláði.
Til að tryggja sem best öryggi lyfjanotenda hefur Lyfjastofnun ákveðið að Z-merkja lyfið og þar með takmarka ávísun þess, að minnsta kosti tímabundið við sérfræðinga í húðsjúkdómum.
Minnt er á að tilkynna grun um aukaverkanir til Lyfjastofnunar þar með talið aukaverkanir vegna rangrar notkunar lyfs og notkunar án samþykktrar ábendingar.