Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 200 þúsund króna miskabóta eftir kynferðislega áreitni á skemmtistað á Ísafirði aðfaranótt 1. mars síðastliðinn.
Maðurinn var ákærður fyrir að grípa tvisvar utanklæða um vinstra brjóst konunnar inni á skemmtistaðnum.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi en konan gerði kröfu um miskabætur að fjárhæð 1,5 milljónir króna.
Maðurinn var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi árið 2019 fyrir blygðunarsemisbrot, en með broti sínu í mars síðastliðnum rauf hann skilorð þess dóms.
Dómari mat það svo að hæfilegar miskabætur væru 200 þúsund krónur, en auk þess þarf maðurinn að greiða sakarkostnað málsins, samtals 388 þúsund krónur. Fangelsisdómurinn yfir manninum er skilorðsbundinn til tveggja ára.