Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir að hóta dóttur sinni lífláti. Maðurinn var ákærður fyrir senda þrjú smáskilaboð til hennar haustið 2017 en efni þeirra var til þess fallið að vekja hjá henni ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Í skeytunum sagði maðurinn:
- Sent 4. október 2017, kl. 19:43: „eg mun drepa þig skitseiði...“.
- 2. Sent 4. október 2017, kl. 21:00: „eg mun drepa þig skitseiði þitt að eg skuli hafa att þig @#$#“.
- 3. Sent 4. október 2017, kl. 21:04: „og endilega hittu mig eða [...] eg mun drepa annað hvort eg er buin“
Maðurinn játaði sök fyrir dómi en honum hefur ekki verið gerð refsing áður. Fyrir dómi var lagt fram vottorð sálfræðings þar sem segir að maðurinn hafi verið í viðtölum hjá sálfræðingi síðan í október 2017.
Hann hafi komið í alls 44 skipti þar sem hann hafi unnið með sjálfan sig almennt og samskipti sín við fjölskyldumeðlimi. Í vottorðinu, sem er dagsett í maí síðastliðnum, segir að samskiptafærni mannsins sé orðin mjög góð og náin samskipti hans í dag gangi almennt mjög vel.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að horft hafi verið til þess að maðurinn hafi sýnt í verki vilja til að bæta ráð sitt. Á hinn bóginn hafi brot mannsins beinst að dóttur hans og verið til þess fallið að vekja hjá henni ótta um líf sitt. Þá var manninum gert að greiða þóknun verjanda síns, rúmra 185 þúsund krónur.