Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, sendir Daða og Gagnamagninu hlýjar kveðjur eftir vonbrigði dagsins.
Í Facebook-hópnum Hrós dagsins gefst fólki tækifæri til að hrósa hinum og þessum – eitthvað sem við mættum vera svo miklu duglegri við að gera. Ingrid, sem er með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði, sendir Daða og Gagnamagninu sérstaka kveðju í hópnum í dag.
„Daði og gagnamagnið fá STÓRT HRÓS. Þau hafa verið algjörlega til fyrirmyndar og haft jákvæð áhrif á andlega heilsu þjóðarinnar á þessum síðustu og verstu. Nú hlökkum við öll til að sjá geggjaða upptöku annað kvöld og svo auðvitað á laugardaginn. Sendum ykkur hlýja strauma og knús,“ segir Ingrid í færslunni sem margir taka undir.
Eins og greint var frá í morgun verður ekkert af því að Daði og Gagnamagnið fari á svið á seinna undanúrslitakvöldinu í Rotterdam, eftir að liðsmaður sveitarinnar greindist með COVID-19 í morgun. Þá verður hópurinn ekki heldur á sviðinu á laugardag fari svo að íslenska lagið komist áfram. Þetta eru sannarlega mikil vonbrigði enda hafði hópurinn lagt á sig mikla vinnu til að láta Eurovision-drauminn rætast.