Íslensku Eurovision-hjónin Daði Freyr Pétursson og Árny Fjóla Ásmundsdóttir eru í klemmu í Berlín og hafa óskað eftir góðum lögfræðingi vegna leiðindamáls sem kom upp á dögunum.
Árný greinir frá því í Facebook-hópnum Berlín, borgin okkar, sem telur tæplega þrjú þúsund meðlimi, að þvottavélin á heimili þeirra í Berlín hafi lekið meðan þau dvöldu á Íslandi við undirbúning fyrir Eurovision sem fram fór fyrir rúmum mánuði. Segir Árný að vélin hafi lekið í tvo mánuði áður en það fattaðist.
„Vatnslekinn náði niður 2 hæðir og triggeraði gamlan (amk 3-5 ára) myglusvepp sem geisar nú í 3 íbúðum. Við erum nýlega flutt og ekki með heimilistryggingar,“ segir Árný í færslunni.
„Okkur var sagt af nágranna sem sá um íbúðina á meðan við vorum á Íslandi að þetta væri amk að hluta tryggt af leiguverðinu. Erum búin að reyna að hafa samband við húseiganda og leigumiðlara án svara og þau demba nú loksins á okkur 35.000 evra skuld án fyrirvara,“ segir Árný en 35.000 evrur jafngilda tæpum 5,2 milljónum króna.
Daði og Árný hafa verið búsett í Berlín undanfarin misseri og hefur vel farið um þau í þessari fallegu borg. Árný gengur sem kunnugt er með þeirra annað barn sem er væntanlegt í heiminn í september. Hún lýsti því í viðtali við Morgunblaðið í maí síðastliðnum að þau hefðu sett stefnuna á að eignast barnið úti í Berlín.
Ekki náðist í Árnýju við vinnslu þessarar fréttar.