Daði og Árný eiga von á öðru barni

Daði Freyr og Árný Fjóley, Eurovisionfarar okkar Íslendinga, eiga von á barni í september næstkomandi. Daði tilkynnti fylgjendum sínum fréttirnar á Instagram í dag. Þetta er annað barn þeirra Daða og Árnýjar.

Eins og flestir vita hafa Daði og Árný verið saman í tíu ár en Eurovision-lag Daða, sem verður flutt eftir tæpan mánuð í lokakeppninni í Hollandi, heitir einmitt Ten Years. Á mynd sem Daði birti á Instagram-síðu sinni má sjá þau í búningunum sínum fyrir tónlistarmyndbandið, en við myndina skrifar Daði einfaldlega:

„Ég og Árny eigum von á öðru barni í september.“

Óhætt er að segja að hamingjuóskunum hafi rignt yfir parið síðan Daði opinberaði fréttirnar nú skömmu eftir hádegið. Sem fyrr segir eiga þau eitt barn fyrir, Áróru Björg, en lagið sem Daði samdi fyrir lokakeppnina í fyrra, Think About Things, var einmitt um hana.