Creditinfo endurskoðar reglur eftir að Samherji var titlaður „framúrskarandi fyrirtæki“

Creditinfo ætlar að endurskoða hvaða fyrirtæki mega kaupa vottunina „framúrskarandi fyrirtæki“ eftir gagnrýni á að umdeild fyrirtæki á borð við Samherja og Init hafi fengið vottun.

Hrefna Ösp Sig­finns­dótt­ir, framkvæmdastjóri Creditinfo, segir í samtali við Kjarnann að það eigi að fjölga mælikvörðum að baki listanum, en fram til þessa hefur það aðeins snúið að bókhaldi. „Eins er til skoð­unar hvort Credit­info áskilji sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af list­anum ef uppi eru sér­stök álita­mál um fram­göngu þeirra eða ef þau sæta rann­sókn vegna spill­ing­ar­mála,“ sagði hún.

Init hefur sætt gagnrýni vegna greiðslna frá lífeyrissjóðum, þá hefur Samherji verið mikið í fréttum síðustu tvö ár vegna meintra mútugreiðslna í Namibíu og rekstur skæruliðadeildar.

„Við höfum kosið að stíga var­lega til jarðar í þeim efnum en gerum ráð fyrir að fyrir liggi ákvörðun í þeim efnum áður en kemur að útgáfu næsta lista Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja en mik­il­vægt er að vanda sig vel og er ekki hægt að byggja valið á umfjöllun í fjöl­miðlum heldur þurfum við að hafa hald­bærar upp­lýs­ingar um rann­sókn opin­berra aðila.“