COVID-smit hjá starfsmanni Hagkaups í Garðabæ

Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir COVID-19 í gærkvöldi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Hagkaupa.

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir að umræddur starfsmaður vinni á nóttunni við áfyllingar og var hann við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi.

„Starfsmaðurinn var lítið sem ekkert í samskiptum við viðskiptavini, bar grímu við störf sín og fór eftir þeim sóttvarnarreglum sem gilda á vinnustaðnum.“

Í tilkynningunni segir að umfangsmikil sótthreinsun á öllum helstu snertiflötum í versluninni hafi þegar átt sér stað til að gæta fyllsta öryggis.

„Þeir starfsmenn sem unnu á sömu vöktum og umræddur starfsmaður um helgina verða sendir í skimum í dag og munu halda sig heima þar til rakningarteymi almannavarna hefur gefið grænt ljós á endurkomu. Öll viðbrögð við þessari stöðu eru unnin í nánu samstarfi við almannavarnir. Starfsemi verslunarinnar helst óbreytt en vel verður fylgst með stöðu mála og brugðist hratt við ef aðstæður breytast.“