Sterkar vísbendingar eru um að stökkbreyting í kórónuveirunni sem veldur COVID-19 hafi orðið til þess að hún á auðveldara með að dreifa sér milli fólks en áður. Frá þessu greinir CNN sem vísar í niðurstöður vísindamanna sem birtust í tímaritinu Cell.
Þó að veiran virðist eiga auðveldara með að dreifa sér virðist hún ekki valda meiri eða verri einkennum. Erica Ollmann Saphire, vísindamaður við La Jolla Institute for Immunology, segir að rannsóknin bendi til þess að þessi stofn veirunnar hafi komið frá Evrópu til Bandaríkjanna og hann sé nú ráðandi í þeim smitum sem greinast vestanhafs.
Í frétt CNN kemur fram að stökkbreytingin hafi áhrif á svokallað bindi- eða broddprótín (e. spike protein) í veirunni. Þetta prótín er á ytri borði veirunnar og hefur áhrif á það hvort veiran geti komist inn fyrir yfirborð hýsilfrumna, til dæmis frumna í mannslíkamanum.
Í frétt CNN kemur fram að þessi stofn veirunnar, G614, sé nú orðinn mun algengari en fyrirrennarinn D614. Virðist munurinn liggja í umræddu bindiprótíni og getunni til að komast inn í frumur. „Við túlkum þetta sem svo að veiran sé sennilega orðin meira smitandi. Það sem er þó áhugavert er að veiran hefur ekki áhrif á það hversu þungt sjúkdómurinn leggst á fólk,“ segir Bette Korber, líffræðingur hjá Los Alamos National Laboratory.
CNN hefur eftir Lawrence Young, prófessor við University of Warwick á Englandi, að sú staðreynd að veiran valdi ekki alvarlegri sjúkdómseinkennum en áður séu góðar fréttir. Vonir vísindamanna hafi staðið til þess að með tímanum yrði veiran ekki eins sjúkdómsvaldandi þó hún gæti haldið áfram að dreifa sér.