Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, lést í gær á sjúkrahúsi í Skotlandi. Jóhannes var sjötugur að aldri, fæddur 3. september árið 1950.
Margir hafa minnst Jóhannesar á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti hans. Einn þeirra er Guðmundur Hilmarsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, til fjölda ára og vinur Jóhannesar.
„Góður vinur fallinn frá. Jóhannes Eðvaldsson (Búbbi) lést á sjúkrahúsi í Glasgow í Skotlandi í dag. Fékk covid og tapaði baráttunni við þá skæðu veiru. Jóhannes var leikfimiskennari minn í nokkur ár og það er óhætt að segja það að hann hafi verið gallharður og fylginn sér í því starfi. Hann var mikil fyrirmynd í boltanum. Grjótharður og topp varnarmaður og markið sem hann skoraði á móti A-Þjóðverjum með hjólhestaspyrnu árið 1975 gleymist seint. Okkar leiðir lágu saman aftur þegar ég gerðist spilandi þjálfari Reynis í Sandgerði eftir ferilinn hjá FH. Búbbi tók þá við starfi sem framkvæmdastjóri Reynis og það voru góðir tímar hjá okkur. Hvíl í friði kæri vinur.“
Jóhannes lék 34 landsleiki fyrir Ísland á árunum 1971 til 1983 en hann var á hátindi ferils síns á árunum 1975-1980 þegar hann spilaði með skoska stórliðinu Glasgow Celtic. Er Jóhannes mörgum stuðningsmönnum Celtic enn í fersku minni. Á ferli sínum lék hann einnig í Suður-Afríku, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Auk þess lék hann með Val og Þrótti hér á landi.
Fjallað var um andlát Jóhannesar á vef The Scottish Sun í gærkvöldi og var meðal annars vísað í falleg orð Murdo Macleod, liðsfélaga Jóhannesar hjá Celtic. „Mjög sorgmæddur að heyra af andláti Jóhannesar,“ segir Murdo en Jóhannes gekk undir gælunafninu Big Shuggie hjá skoska stórliðinu.
„Hann lék stórt hlutverk í liðinu þegar við unnum Rangers, 4-2, árið 1979 sem varð til þess að við urðum meistarar,“ sagði Murdo einnig. Í frétt The Times um andlát Jóhannesar segir að hann hafi verið í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Celtic, enda var hann þekktur fyrir mikla ósérhlífni. Hann gat leyst margar stöður á vellinum en leið yfirleitt best í miðri vörninni.