„Mikilvægt er að við nálgumst þessar breytingar saman og förum eftir tilmælum stjórnvalda með opnum hug og jákvæðu hugarfari,“ segir Bóas Valdórsson, sálfræðingur í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Bóas skrifaði áhugaverða grein á vef skólans í gær, en yfirskrift hennar er Áhrif óvissu á andlega líðan og hjálpleg viðbrögð. Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum landsmönnum að COVID-19 veiran er komin til landsins og eru áhrifin af henni nú þegar orðin umtalsverð. Í grein sinni birtir Bóas nokkur atriði sem gott er að hafa í huga fyrir andlega heilsu.
Eðlilegt að upplifa ótta
Bóas segir eðlilegt að mikil og áberandi umfjöllun um COVID-19 hafi áhrif á það hvernig okkur líður. Eðlilegt sé að upplifa ótta og óöryggi þegar svona aðstæður koma upp í samfélaginu.
„Því óvissustigið er nokkuð hátt og inngrip stjórnvalda eru og munu að öllum líkindum hafa nokkur áhrif á daglegt líf okkar næstu vikurnar og lita umræðuna í samfélaginu.“
Bóas bendir á að ráðleggingar stjórnvalda á næstu vikum muni hafa áhrif á marga einstaklinga og þeirra verði vart á ýmsum sviðum.
„Sem dæmi þá hefur fólk verið beðið um að fara í 14 daga sóttkví heima hjá sér, viðburðir hafa verið felldir niður og líklegt að einhverjar lokanir verði eða breytt starfsemi útfærð með einhverjum hætti eins og með breyttum opnunartíma, fjarþjónustu, fjarkennslu og fjarvinnu. Í alþjóðlegu samhengi virðast stjórnvöld vera að bregðast við með svipuðum hætti.“
Sterkar tilfinningar í óvissu
Bóas skrifar einnig um áhrif óvissunnar á sálarlífið; flest séum við þannig að við upplifum öryggi og ró þegar við vitum hvað er fram undan. En að sama skapi sé algengt að fólk upplifi sterkar tilfinningar eins og ótta og óöryggi þegar óvissa er í spilunum.
„Dæmi um það sem getur valdið óvissu er þegar við erum í nýjum aðstæðum, þegar við upplifum að aðstæður sem við erum í séu hættulegar, þegar aðstæður breytast dag frá degi og þegar við þurfum að læra að hegða okkur á nýjan hátt og breyta út af því sem við erum vön. Það er eðlilegt að upplifa ótta og óöryggi þegar við upplifum slíkar aðstæður og miklar breytingar verða á daglegu lífi okkar.“
Bóas bendir á að í slíkri óvissu upplifi fólk gjarnan kvíða, óöryggi og pirring svo eitthvað sé nefnt. Hugur okkar fari jafnvel á flug og við förum að velta fyrir okkur öllum mögulegum og ómögulegum afleiðingum. Þá eigi fólk það til að geta í eyðurnar, giska á niðurstöður eða máta sig við neikvæða útkomu.
„Slíkur vítahringur eykur oft óþægilega upplifun okkar og óöryggi. Það er því mikilvægt að staldra aðeins við nokkur atriði sem gott getur verið að hafa í huga í slíkum aðstæðum. Með þeim hætti er oft hægt að draga úr ótta og óöryggi og nálgast viðfangsefnið, sem vissulega er snúið, með uppbyggilegum hætti.“
Gott að hafa í huga
Bóas birtir svo í pistli sínum nokkur góð ráð sem fólk getur haft í huga og eru þau birt hér að neðan:
- Yfirvöld eru með markvissum hætti að bregðast við veirusmiti á landinu. Fylgst er vel með og viðbragðsaðilar eru með mikinn viðbúnað.
- Áhersla er lögð á að hægja á veirusmiti eins og kostur er.
- Mikilvægast er að þvo sér vel og oft um hendurnar, með vatni og sápu eða handspritti. Svo er góð regla að forðast náin samskipti við aðra sem eru með einkenni kvefs, eins og hnerra eða hósta. Ef þú þarft að hósta eða hnerra er betra að gera það í olnbogann en ekki í hendurnar eða út í loftið.
- Umræðan virðist vera mikil í samfélaginu og mikilvægt að við leitum okkur upplýsinga frá opinberum aðilum svo sem Embætti landlæknis og tölum með uppbyggilegum hætti við hvert annað. Enginn er að upplifa stöðuna eins og ýmislegt sem getur farið í gegnum hugann bæði rökrétt og órökrétt.
- Það er mikilvægt að hafa í huga að í sumum fjölskyldum eru veikir einstaklingar sem hafa raunverulegar áhyggjur. Okkar viðbrögð hafa mikil áhrif á líðan þeirra og öryggistilfinningu. Höfum það í huga þegar við tjáum okkur á samfélagsmiðlum og í tengslum við almenn viðbrögð okkar.
- Það er gríðarlega mikilvægt að á næstu vikum reynum við öll að halda ró okkar, förum eftir ráðleggingum og förum ekki fram úr okkur í almennri umræðu.
- Tölum við fjölskyldu okkar og vini. Sinnum okkur sjálfum og vinum okkar og reynum að huga að uppbyggilegum hlutum í kringum okkur.
- Í hlaðvarpinu Dótakassinn er fjallað um ýmis ráð við því þegar aðstæður okkar breytast og hvernig við getum brugðist við með uppbyggilegum hætti við óvæntum aðstæðum eða sterkum tilfinningum.
Hér má lesa grein Bóasar í heild sinni.