Óhætt er að segja að heimsbyggðin hafi upplifað undarlega tíma undanfarna mánuði vegna COVID-19 faraldursins. Margar þjóðir hafa gripið til harðra aðgerða til að takmarka útbreiðslu veirunnar, þar á meðal samkomubanns eins og við Íslendingar þekkjum á meðan aðrar þjóðir hafa farið enn ákveðnari leið og beitt útgöngubanni.
Nú hafa vísindamenn birt niðurstöður rannsóknar sinnar í tímaritinu Nature og varpa niðurstöðurnar ljósi á það hvers vegna það er mikilvægt að grípa til harðra aðgerða. Faraldurinn í sex löndum var skoðaður sérstaklega: Bandaríkjunum, Kína, Ítalíu, Frakklandi, Íran og Suður-Kóreu. Washington Post fjallar um þetta.
Faraldurinn skall á þessum þjóðum af fullum þunga og skoðuðu vísindamennirnir þróun faraldursins áður en gripið var til aðgerða og eftir að þær tóku gildi. Telja vísindamenn að í þessum sex löndum hafi sóttvarnaráðstafanir yfirvalda komið í veg fyrir samtals 530 milljón smit. Með þessum ráðstöfunum er til dæmis átt við lokanir skóla og fyrirtækja, samkomubann, útgöngubann, fjarlægðartakmarkanir (2 metra reglan) og vinna að heiman.
Þetta er býsna ógnvekjandi tala sé litið til þess að heildarfjöldi tilfella á heimsvísu er rétt rúmlega sjö milljónir samkvæmt tölum Johns Hopkins-háskólans í Baltimore. Þá er fjöldi dauðsfalla kominn í 403 þúsund samkvæmt. Telja vísindamennirnir að Kínverjar hafi komið í veg fyrir 285 milljón smit og Bandaríkin 60 milljón smit.