Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að nokkur kórónuveirusmit hafi greinst um helgina og ekki hafi allir þeirra sem greindust verið í sóttkví.
Þórólfur var í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi tölur helgarinnar. Eftir smitlaus tímabil frá seinni hluta febrúarmánaðar og fyrri hluta marsmánaðar hefur veiran minnt á sig hér á landi að undanförnu. Þórólfur sagðist ekki hafa tölur á reiðum höndum um fjölda smita en sagði þó að nokkur smit hefðu komið upp. Það versta er líklega að ekki voru allir í sóttkví.
Þórólfur sagði að þrír væru nú á sjúkrahúsi með veiruna en spurður að því hvort þeir væru mikið veikir sagði hann að fólk væri ekki lagt inn án þess að vera mikið veikt. Þá bætti hann við að nokkrir væru í biðstöðu og gætu þurft á innlögn að halda á næstu dögum. Þórólfur sagði augljóst að smit væri einhversstaðar úti í samfélaginu.
Greint var frá því í gærkvöldi að tíu skipverjar á súrálsskipi, sem kom til hafnar á Reyðarfirði um helgina, væru smitaðir af veirunni en þeir eru nú í einangrun um borð og hafa ekki farið í land. Þá greindi mbl.is frá því í morgun að leikmaður karlaliðs Fylkis í fótbolta væri smitaður af veirunni en hann var í leikmannahópi liðsins sem mætti Stjörnunni um helgina. Leikmannahópar beggja liða þurfa að fara í sóttkví.
Þá greindi Vísir frá því í morgun að 80 nemendur og fjórir starfsmenn í Laugarnesskóla þyrftu að fara í sóttkví eftir að kennari í skólanum greindist með veiruna í gær. Starfsmaðurinn hefur ekki verið í skólanum síðan á þriðjudag í síðustu viku.