Aðalmeðferð í máli gegn Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi ráðherra, fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Baldvin er ákærður fyrir kynferðislega áreitni í garð Carmenar Jóhannsdóttur á Spáni sumarið 2018.
Jóni Baldvin er gefið að sök að hafa strokið rass hennar ákaft í vitna viðurvist en hún hafði verið í matarboði uppi á þaki ásamt Jóni Baldvin, eiginkonu hans Bryndísi Schram, Laufeyju móður sinni og annarri konu.
Jón Baldvin bar vitni á undan Carmen í héraðsdómi í morgun og hafnaði hann því að nokkuð hefði átt sér stað.
Carmen bar vitni frá Spáni í gegnum fjarfundabúnað. Hún sagði að rúmar 20 mínútur hafi liðið eftir að þau byrjuðu að borða þar til hún stóð upp til að sækja meira vín sem hafi verið geymt upp við vegg.
„Ég sæki vínið, Jón Baldvin er þá vinstra megin við mig, ég fer hinum megin við hann að skenkja glösin, þá byrjar hann að strjúka á mér rassinn mjög ákaft,“ sagði Carmen en Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um aðalmeðferðina í morgun.
Carmen segir að henni hafi krossbrugðið og raunar farið í algjört sjokk.
„Ég sest aftur niður og spyr þá móðir mín hvað sé að, ég kem ekki upp orði, og hún horfir á Jón Baldvin og segir: „Ég sá hvað gerðist, biddu dóttur mína afsökunar“. Hann segist ekki vita hvað hún sé að tala um, ég stend upp og fer niður í íbúðina.“
Það fyrsta sem Carmen kveðst hafa gert í kjölfarið var að hringja í fyrrverandi kærasta sinn til að spyrja hvað hún ætti að gera. Hann hafi ráðlagt henni að fara. Hún og móðir hennar hafi svo farið.
„Við erum ekki komin nema 200 metra frá húsinu, þá heyrum við öskur og köll. Bryndís er að biðja mömmu um að hugsa sig um. Að vera ekki í fýlu, við ætlum að vera áfram að ræða málin. Það kom ekki til greina. Jón Baldvin stendur þarna við hlið konu sinnar og kallar og æpir á eftir okkur, að ef við förum með þetta í fjölmiðla ætli hann að lögsækja okkur, mig og móður mína.“
Þær hafi svo farið og leitað sér að hótelherbergi en endað hjá vini hennar. Carmen sagðist ekki hafa getað hugsað sér að vera áfram á staðnum og bætti við, aðspurð, að henni hafi liðið illa lengi eftir umrætt atvik.
„Mér leið eins og einhver væri að nýta sér vald sitt gegn sér, að hafa vald yfir mér,“ sagði Carmen. „Fyrst var þetta sjokk og þetta var hálf ótrúlegt, maður varla trúði því að þetta hefði gerst. Við vorum þarna dauðþreyttar og fáum tölvupóst frá Bryndísi um nóttina með afsökunarbeiðni, að hún hafi verið miður sín og þætti þetta leitt. Nokkrum tímum síðar komu önnur samskipti fram að hún vildi slíta samskiptum og ekki vera áfram í sambandi. Allt í lagi, það var augljóst mál. En tíminn eftir þetta … mér leið ömurlega í marga mánuði og ekki út af mér sjálfri, heldur vitandi til þess að það gætu verið aðrar manneskjur að lenda í þessu. Eftiráhyggja er mesta vanlíðan að vita ekki hvað ég ætti að gera, hvern ég ætti að tala við.“
Lögmaður Jóns Baldvins spurði Carmen ítarlega út í atvikið. „Ég stend upp, ég fer fyrir aftan Jón Baldvin, fyrir aftan hann upp við vegginn. Hægra megin við hann er vaskur sem er ekkert óvenjulegt á þökum á Spáni. Þar geymdum við vínið eins og á aukaborði, ég næ í vínið og glösunum er stillt upp og ég er hella í öll glösin í einu, þetta var ekki eitt glas. Og þá byrjar Jón Baldvin að strjúka á mér rassinn.“
Carmen sagði að hann hefði strokið sér. „Upp og niður, einu sinni, mjög ákaft. Þetta stóð mjög stutt yfir,“ sagði hún. „Hann fór í klofið á mér.“