Byssumálið á Egilsstöðum: „Málavextir hafa verið rýndir innanhúss“

Lögreglan á Austurlandi sendi í morgun frá sér tilkynningu vegna byssumálsins á Egilsstöðum í síðustu viku, en þar var maður skotinn eftir að hafa skotið í átt að lögreglu. Maðurinn er á batavegi eftir atvikið og kveðst lögregla vera þakklát fyrir það.

„Lögreglan á Austurlandi þakkar öllum þeim sem komu að aðgerð hennar og eftirmálum þann 26. ágúst síðastliðinn, meðal annars hvað varðar áfallahjálp og sálrænan stuðning. Lögreglan telur brýnt að allir sem telja sig hafa þörf fyrir slíka aðstoð þiggi hana hjá fagaðilum, svo sem hjá félagsþjónustunni á Egilsstöðum eða Heilbrigðisstofnun Austurlands. Þessir aðilar eru til þjónustu reiðubúnir og veita nánari leiðbeiningar. Þá er lögregla þakklát fyrir góðan bata þess er varð fyrir áverka í aðgerð hennar og biður þar fyrir góðar kveðjur.“

Í tilkynningunni segir einnig að lögreglumenn sem að aðgerðinni komu hafi fengið sálræna aðstoð – atvik sem þessi hafa áhrif á alla er að koma. 

„Málavextir hafa verið rýndir innanhúss og er ekkert á þessu stigi sem bendir til að verklagi í málum sem þessum hafi ekki verið fylgt. Áréttað er að málið er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara.“