„Byrjaði á nuddkonunni fyrr í dag“

Tómas A Tómas­son, þing­maður Flokks fólksins, birtir SMS sam­skipti á milli sín og ó­nefnds aðila þar sem lítur út fyrir að rædd séu vændis­kaup.

„Kæru twitter vinir þetta skjá­skot er að fara að birtast i fjöl­miðlum,“ skrifar Tómas með skjá­skotinu á sam­fé­lags­miðlinum.
„Vil taka fram að ég var ó­lofaður og ó­giftur þegar þetta átti sér stað en svona er lifið engin veit sína æfi fyrr en öll er.“

Í sam­skiptunum ræðir Tómas vændis­kaup í Bang­kok í Tæ­landi. Vísir ræðir við Tómas vegna málsins og þar þver­tekur hann fyrir um að hafa keypt vændi.

„Auð­vitað hefði ég kosið að þetta væri ekki í dreifingu, ég get ekki sagt annað,“ segir Tómas við Vísi.

„Eins og ég sagði við þig, ég hef boðið konu út að borða og það hefur endað með kyn­lífi. Ef það er að borga fyrir kyn­líf, þá, ja, hvað á ég að segja við þig? Er það að borga fyrir kyn­líf?“