Þeim fjölgar sífellt sem kalla eftir vægari aðgerðum innanlands í ljósi mikillar fækkunar kórónuveirusmita að undanförnu. Hringbraut sagði í morgun frá því að Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, væri kominn með nóg af grímuskyldunni.
„Hvenær verður grímuskyldan aflögð og samkomutakmarkanir einnig? Er þetta ekki orðið gott,“ spurði Gunnar Smári.
Sjá einnig: Gunnar Smári kominn með nóg af grímuskyldunni: „Er þetta ekki orðið gott?“
Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, blandar sér einnig í umræðuna en í færslu á heimasíðu sinni í morgun bendir hann á að síðast hafi greinst smit utan sóttkvíar hér á landi þann 20. janúar síðastliðinn.
„Eðlilegt er að spurt sé hversvegna þarf að beita sóttvarnaraðgerðum innanlands þegar engin er sóttin? Er afsakanlegt að svipta fólk frelsi vegna sóttar sem geisar ekki í landinu? Af hverju þarf að telja inn í verslanir og af hverju er grímuskylda. Já og af hverju er tveggja metra fjarlægðarregla og fólki bannað að horfa á íþróttakappleiki nema í sjónvarpi. Hversvegna er fólki bannað að heimsækja vini og ættingja á elli- og sjúkraheimili og bannað að mæta í jarðarfarir án þess að það sé talið inn.“
Jón bendir á að íslenska þjóðin hafi tekið ótrúlega vel í þau tilmæli sem til hennar hefur verið beint varðandi sóttvarnir í Covidinu. Góðan árangur í baráttunni megi fyrst og fremst þakka ábyrgðarkennd alls þorra landsmanna sem hafi gætt þess vel að hamla sem mest smitum vegna Covid.
„Nú eru liðnir 37 dagar án þess að smit hafi greinst í landinu utan sóttkvíar. Yfirvöld hafa því engan rétt af sóttvarnarástæðum eða öðrum til að takmarka frelsi fólksins í landinu til að lifa lífi sínu með venjulegum og eðlilegum hætti. Við þessar aðstæður er það ekkert annað en ábyrgðarleysi af ríkisstjórninni að létta ekki af hömlum á frelsi fólksins í landinu til leika og starfa eins og var fyrir Covid með þeirri undantekningu þó, að gæta verður þess að smit berist ekki inn í landið.“
Jón bendir á að það kosti þjóðfélagið mikið að skerða frelsi fólks en augljóst sé að það sé auðveldara að svipta fólk frelsi sínu en að koma því á aftur.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, kallaði svo eftir því á Facebook-síðu sinni í morgun að allar takmarkanir innanlands yrðu felldar niður. „Þetta er orðið ágætt,“ sagði hann.
„Er ekki næstum mánuður síðan það fannst virkt smit utan sóttkvíar innanlands? Það er búið að bólusetja allra viðkvæmasta hópinn í efsta aldursþrepi. Varnir á landamærum hafa verið hertar. Eftirlit með fólki í sóttkví hefur verið aukið. Förum svo að huga að sumri á grundvelli meðalhófs og heilbrigðrar skynsemi. Helmingur þjóðarinnar verður fullbólusettur í júní og fleiri komnir með vörn eftir að hafa fengið fyrri sprautu.
Bretar verða búnir að bólusetja alla sína í lok júní. Á hvaða forsendu ætlum við að setja skorður við frjáls ferðalög þeirra til Íslands í sumar? Mæli með því að við blásum til cov-kveðjuhátíðar,“ sagði Kristinn.