„Ég verð að viðurkenna að ég ströggla þegar kemur að skilningi á menningarnámi og hinum siðferðilegu mörkum sem þar fylgja. Mynd af kennara í búningi frá Arabíuskaga hneykslar mig ekki,“ segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands.
Óhætt er að segja að mynd af kennara á Ísafirði hafi vakið reiði margra, en um var að ræða mynd sem birtist á vef Fréttablaðsins í gær þar sem fjallað var um svokallaðan maskadag sem Ísfirðingar halda hátíðlegan að kvöldi bolludags. DV fjallaði um málið í gærkvöldi með umræddri frétt birtist mynd af tveimur kennurum í búningi og blöskraði mörgum búningur annars kennarans sem klæddi sig upp sem araba.
Kennaranemar sendu í kjölfarið póst á skólastjóra Grunnskólans á Ísafirði þar sem þeir gagnrýndu háttalag kennarans harðlega. „Síðustu ár hefur mikið borið á umfjöllun um það hversu óviðeigandi það er þegar fólk klæðir sig upp í búning sem manneskja af annarri menningu eða kynþætti, sér í lagi hvítt fólk í forréttindastöðu,“ sagði meðal annars í póstinum.
Ragnar Þór skrifar langan pistil á Facebook um málið og mál þessu tengt en í pistlinum kemur Ragnar Þór umræddum kennara til varnar.
„Það er auðvitað ekkert mál að finna dæmi um búninga eða gervi sem hafa það hlutverk að hæðast að eða gera lítið úr einhverjum - og sérstaklega undirokuðum hópum. Það er augljóslega rangt en einhvernveginn er menningarnám flóknara fyrirbæri en það,“ segir Ragnar Þór.
Ragnar segir að kennarar þurfi vissulega að vera nærgætnir og taka sérstakt tillit til þess að nemendur hafa ólíkan og fjölbreyttan uppruna. „Ég hinsvegar get alveg ímyndað mér aðstæður þar sem kennari og nemendur taka saman þátt í að vekja athygli á uppruna sumra nemenda, t.d. með því að klæðast búningum eða skarti, hengja upp myndir eða skraut eða taka þátt í matseld sem minnir á uppruna nemenda í minnihluta. Ég get vel séð fyrir mér að slíkt gæti einkennst af væntumþykju og virðingu - jafnvel þótt stuðst væri við staðalmyndir. Íslenskur nemandi í erlendum skóla sem ætti erlendan kennara sem mætti í lopapeysu og leyfði börnum að smakka þorramat hefði að mínu mati líklega virkilega góðan kennara.“
Ragnar segist sömuleiðis skilja hina hliðina. „Að vera arabi og sprengjuvesti er hluti af búningnum er til dæmis augljóst dæmi um skuggahliðina. Það er tillitslaust og vanvirðing og til þess fallið að auka fordóma fyrir fólki með tiltekinn uppruna. Að kona á Íslandi klæði sig í arabískan karlbúning finnst mér hinsvegar ekki ámælisvert út frá grunngildum okkar samfélags. Það kann að vera að það móðgi einhverja af þessum uppruna sem telji slíkan búning óviðeigandi í tilfelli kvenna - en mér finnst við komin á hættulega braut ef virðing fyrir ólíkri menningu krefur okkur um virðingu fyrir kúgun, mismunun og fordómum. Ég játa samt að mér þætti lítilsvirðandi ef Íslendingur klæddist arabískum kvenbúningi þar sem rétt grillti í augun. Þannig kann að vera að næmi mitt sé að einhverju leyti tilviljanakennt að þessu leyti og ástæða til að draga það í efa. Eða réttara sagt: Ég finn mjög greinilega að mælikvarði minn á þessu sviði er ófullkominn og ónákvæmur.“
Ragnar segir að það sem hins vegar þurfi ekki að vera ónákvæmt eða ófullkomið sé sá hugur sem býr að baki. Það sé einhvernveginn eðlilegt að fella siðadóma um hann.
„Þannig að ég skil eiginlega hvorki upp né niður í gráu svæðunum. Ég skil kolsvörtu svæðin vel en á erfitt með að átta mig á hvernig fjölmenning á að virka ef litirnir í pallettunni eiga ekki að fá að blandast á öllum sviðum mannlífsins með sem fjölbreytilegustum hætti. Og ég á erfitt með að fella siðferðilega dóma á sviðum sem ég hef takmarkaðan skilning á. Siðferði þitt er á endanum eitthvað sem þú ert sjálfur ábyrgur fyrir og þarf alltaf (að mínu mati) að byggja á mælikvarða innra með sjálfum þér í stað þess að þú sveigir þig undir boð og bönn annarra.“
Pistil Ragnars má lesa í heild hér að neðan.
Menningarnám Ég verð að viðurkenna að ég ströggla þegar kemur að skilningi á menningarnámi og hinum siðferðilegu mörkum...
Posted by Ragnar Þór Pétursson on Miðvikudagur, 17. febrúar 2021