Búinn að selja 15.000 Þristamýs

Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er orðinn einn allra vinsælasti áhrifavaldur á íslenskum samfélagsmiðlum, með fleiri en 20.000 dygga fylgjendur á Instagram.

„Þetta er ótrúlega sérstakt atriði… Háaldraður maðurinn,“ segir Sigmar í viðtali í hlaðvarpinu Skoðanabræðrum, sem bræðurnir Bergþór og Snorri Másson halda úti.

„Þetta byrjar bara á Covid,“ segir Sigmar. „Við feðgar komum úr skíðaferð og förum í afturvirka tíu daga sóttkví og þú ert bara strand heima hjá þér. Þá hugsa ég bara ókei. Hvernig get ég nýst mínum rekstri einhvern veginn?“

„Ég auðvitað bara dusta rykið af gömlum 70 mínútna töktum og er bara að búa til dagskrá þessa 10 daga. Ég ákveð að sameina það við áhugamál mitt, að elda mat, af því að dagsdaglega hefur maður ekki alltaf mikinn tíma til að elda mat. Þannig að ég ákvað að henda í 10 daga veislumáltíðir fyrir okkur feðga.“

Þannig byrjaði þetta, að sögn Sigmars, „og ég held að fylgjendahópurinn hafi farið úr 5.000 manns upp í 10.000 þessa tíu daga. Og svo einhvern veginn hefur það undið upp á sig.“

Fylgjendurnir eru, þegar þetta er skrifað, orðnir 21.500.

Áhrif þessa miðils eru mikil

Dagskráin á hringrás Sigmars (e. story) felst, ásamt því að fjalla um þær vörur sem hans eigin fyrirtæki bjóða upp á, í að opna pakka frá fjölda íslenskra fyrirtækja, sem innihalda allt frá kynlífstækjum til íþróttasokka.

„Ég er ekki að fá borgað frá neinum fyrir að fjalla um neitt. Ég náttúrulega er að fjalla um það sem ég er að gera. Ég hugsa þetta bara þannig að ef einhver sendir mér eitthvað segi ég mína skoðun á því.“

„Ef þetta er eitthvað drasl þá er ég bara ahh.. þetta er ekki fyrir mig, sko. Menn taka stundum áhættu, því ég segi hvort mér finnist hlutirnir í lagi eða ekki. Það er það sem skiptir máli þegar þú ert að fylgjast með einhverjum að þetta sé trúverðugt í þá áttina.“

Sem dæmi um styrk miðilsins nefnir Sigmar að selst hafi 15.000 eintök af þristamús svokallaðri, sem sagt súkkulaðimús með Þristi. Þær hefur hann sent um allt land. „Áhrif þessa miðils eru ansi mikil.“